Gervigreindarlæsi vs. að kunna á gervigreind

“…líklegt megi teljast að fjöldi kennara á landinu sem telur sig búa yfir nokkuð góðum skilningi á gervigreind, og spunagreind sérstaklega, eftir að hafa fengið aðgang og fræðslu sem endaði fyrir aðeins um hálfu ári, er í dag illa upplýst um þá spunagreind sem nemendur þeirra eru að nota.”

Spunagreind, sú tegund gervigreindar sem flestir nota dagslega: ChatGPT, Google Gemini, Claude og CoPilot, hefur á skömmum tíma náð útbreiðslu sem er með eindæmum. Engin tækni í sögu mannkyns hefur breiðst út með álíka hraða. Nú er svo komið að spunagreind þykir sjálfsagt tól í mörgum störfum og hafa því margir fengið aðgang að einhverri slíkri tækni í gegnum sína vinnu. Sem dæmi hefur starfsfólk og fræðafólk HÍ aðgang að CoPilot, kennarar grunnskóla Reykjavíkur hafa aðgang að Google Gemini. Í mörgum tilvikum fylgir einhver fræðsla um notkun þessarar tækni en sumir kjósa að læra í gegnum fikt.

Margir hafa náð góðum tökum á spunagreind og geta nýtt hana á ábyrgan hátt í fjölbreyttum verkefnum. Telst það fólk þá vera gervigreindarlæst? Ekki endilega. Gervigreindarlæsi felst meðal annars í því að skilja hvernig spunagreind vinnur og hvernig hún getur nýst við ólíkar aðstæður. Útgáfur sem kennarar fá aðgang að í gegnum skóla sína hafa oftast aðra eiginleika en þær spunagreindir sem nemendur og aðrir geta nálgast ókeypis eða gegn gjaldi utan skólaumhverfisins. Þessi munur getur farið fram hjá kennara sem þekkir spunagreind fyrst og fremst af eigin reynslu í starfi. Hluti af gervigreindarlæsi kennara er því að átta sig á hvaða möguleika þeir sjálfir og nemendur þeirra hafa og meta hvaða þýðingu munurinn hefur fyrir kennslu, nám og námsmat.

Í mörgum tilvikum þegar fólk hefur aðgengi að spunagreind í gegnum vinnu sína er sá aðgangur takmarkaður að einhverju leyti til að tryggja að notkun samræmist reglum um persónuvernd, gagnaöryggi, höfundarétt og fleira. Kennari sem hefur aðgang að Google Gemini í gegnum Google Classroom kerfi skóla síns notar til dæmis útgáfu af Gemini sem er töluvert frábrugðin þeirri útgáfu sem almennur notandi með keyptan aðgang notar. Bæði er um að ræða kerfislegar takmarkanir sem tengjast Google Classroom umhverfinu almennt og einstakar takmarkanir sem kerfisstjóri getur stýrt til að tryggja samræmi við persónuverndarstefnu og fleira. Enn sem komið er eru það aðeins kennarar sem hafa aðgang að þessari sérútgáfu Google Gemini, ekki nemendur. Eins er farið í Háskóla Íslands, starfsfólk og fræðafólk hefur aðgang að sérstakri útgáfu CoPilot en ekki nemendur.

Við vitum hins vegar að margir (jafnvel flestir) nemendur allt frá unglingsaldri og upp í háskóla eru að nýta spunagreind í tengslum við sitt nám og verkefnavinnu (þetta sýna fjöldi rannsókna en líka reynsla kennara á öllum viðkomandi skólastigum). Þar sem þessir nemendur hafa ekki aðgang að þeirri spunagreind sem kennarar þeirra nota, eru þeir augljóslega að nýta sér annað. Þá má eiginlega gefa sér að þeir eru að nota útgáfur af spunagreind sem almenningur hefur aðgang að, ókeypis eða með greiddum aðgangi. Sú spunagreind kann að hafa allt aðra eiginleika og möguleika til notkunar en takmarkaða spunagreindin sem kennari hefur aðgang að í gegnum sína vinnu.

Það er því ekki sjálfgefið að kennari sem hefur lært á þá spunagreind sem starfsstaðurinn veitir aðgengi að geri sér grein fyrir notkunarmöguleikum sem nemendur kunna að hafa í gegnum aðgang sem þeir hafa sjálfir orðið sér út um. Það er hér sem munurinn á að vera gervigreindarlæs og að vera fær um að nota gervigreind verður ljós. Gervigreindarlæs manneskja gerir sér grein fyrir möguleikum og takmörkunum tækninnar almennt hverju sinni og ætti því að hafa góðan skilning á muninum á “sinni” gervigreind og þeirri gervigreind sem aðrir hafa aðgang að. Manneskjan sem “kann á” þá gervigreind sem hún hefur aðgang að en gerir sér ekki grein fyrir því sem aðrar gervigreindir geta framkvæmt býr yfir takmörkuðu gervigreindarlæsi.

Síðastliðinn vetur (2025-2026) stóð Miðstöð menntunar og skólaþjónustu fyrir þróunarverkefni þar sem kennarar á grunn- og framhaldsskólastigi fengu aðgang að og fræðslu um spunagreind: grunnskólakennarar notuðu Gemini í gegnum Google-umhverfi skólanna og framhaldsskólakennarar skólaútgáfu Claude, Claude.edu, frá Anthropic. Verkefninu lauk síðasta maí. Síðan þá hafa töluverðar breytingar orðið á þeirri spunagreind sem almennt aðgengi er að í gegnum ókeypis eða keyptan aðgang gervigreindarfyrirtækja. Svokallað “agentic AI” (“drekar” á íslensku sbr. “erindrekar”) er nú almennur fítus í spunagreindum. Breytingar hafa orðið á hvernig spunagreindir vinna með minni um tiltekna notendur, þ.e.a.s. gögn sem spunagreindin notar til að sérsníða vinnslu og afurðir að tilteknum notanda. Nýlega kynnti OpenAI nýtt líkan, GPT 6.1 Terra, sem er mun ólíklegra til að “ofskynja”, þ.e. að fara með fleipur eða skálda efni, en fyrri líkön eða næstum 40% ólíklegri! Allar þessar breytingar, og fleiri sem ekki eru taldar upp hér, hafa töluverð áhrif á virkni og getu spunagreindar. Allar hafa þær verið innleiddar eftir að kennarar fengu sína fræðslu síðasta vetur. Gervigreindarlæs kennari er meðvitaður um þessar breytingar og áhrifin sem þær hafa. Sá sem kann á “sína” spunagreind er það kannski, kannski ekki.

Spunagreindir eru í dag margar og nokkuð ólíkar með tilliti til virkni og getu og breytingarnar verða enn á ógnarhraða. Afleiðingin er sú að líklegt megi teljast að fjöldi kennara á landinu sem telur sig búa yfir nokkuð góðum skilningi á gervigreind, og spunagreind sérstaklega, eftir að hafa fengið aðgang og fræðslu sem endaði fyrir aðeins um hálfu ári, er í dag illa upplýst um þá spunagreind sem nemendur þeirra eru að nota. Þetta hef ég áður kallað “gervigreindarlæsisskuld” sem er ætlað að vísa til þess mikils fjölda fólks sem er að nýta gríðarlega öfluga tækni með aðeins yfirborðslegan skilning á henni. Að kunna á spunagreind gerir kennara kleift að nýta þau verkfæri sem hann hefur aðgang að. Gervigreindarlæsi gerir honum kleift að meta áhrif gervigreindar og þróunar hennar á skólastarfið í heild, allt frá því hvernig nemendur vinna verkefni til þess hvernig skólinn metur hvað þeir hafa lært.

This entry was posted in AI literacy, Artificial Intelligence, Education, Future. Bookmark the permalink.

Leave a Reply

*