Fyrir nokkrum dögum birti ég hér stuttan pistil um muninn á því að “kunna á gervigreind” og að vera gervigreindarlæs. Ég ætla að halda aðeins áfram með þetta þema hér.
Í töflunni fyrir neðan hef ég tekið saman nokkur samanburðarhæf dæmi sem lýsa því hvernig gervigreindarnotendur sem „kunna á gervigreind“ nálgast tæknina og hvernig þeir sem teljast gervigreindarlæsir nálgast hana. Það er ekki alltaf hægt að greina á milli þessara ólíku nálgana út frá því sem notendur gera. Allir notendur geta verið mjög færir og jafnvel gert nákvæmlega sömu hlutina við álíka aðstæður. Munurinn á nálgununum liggur fyrst og fremst í þeim skilningi sem notendur byggja ákvarðanir sínar á. Gervigreindarlæsi felst í djúpum skilningi á gervigreind sem gerir notendum kleift að taka upplýstar ákvarðanir og hafa meðvituð áhrif á samskipti sín við tæknina og þau hlutverk sem henni er ætlað að gegna í lífi þeirra.
Hvernig er gervigreindarlæsið þitt? Kannaðu það í sjálfsmatinu á gervigreindfyrirkennara.is.
| Aðstæður |
Sá sem „kann á gervigreind“ |
Sá sem er gervigreindarlæs |
| 1. Samfélagsmiðlar |
Skrunar í gegnum efni sem birtist, líka það sem hann hefur lítinn áhuga á eða vill helst ekki sjá. |
Mótar efnisstrauminn með markvissri hegðun og stillingum. Gerir sér grein fyrir að algrímið þjónar hagsmunum miðilsins en líka sínum. |
| 2. Upplýsingaleit |
Leitar upplýsinga með leitarvélum eða spunagreind og nýtir niðurstöðurnar sem hann fær. |
Skoðar hvaðan upplýsingarnar koma, hvernig þær eru valdar og hvað gæti vantað. Leitar annarra heimilda þegar ástæða er til. |
| 3. Notkun spunagreindar |
Hefur lært að gefa fyrirmæli sem skila góðum niðurstöðum og nýtir spunagreind í fjölbreytt verkefni. |
Velur hvernig og hvenær hann nýtir spunagreind út frá skilningi á getu hennar, takmörkunum og því sem hann vill sjálfur ná fram. |
| 4. Samhengishönnun |
Gefur spunagreind fyrirmæli um verkefni og lagfærir eða útfærir niðurstöðurnar eftir þörfum. |
Mótar samhengi verkefnisins þannig að spunagreindin byggi á þekkingu, reynslu, hugmyndum og markmiðum notandans. Stýrir samstarfinu þannig að eigin sköpun og dómgreind ráði ferðinni. |
| 5. Mat á niðurstöðum |
Les yfir svör spunagreindar og lagfærir villur sem hann tekur eftir. |
Leggur mat á áreiðanleika svara, kannast við vísbendingar um mögulegar villur og sannreynir upplýsingar. |
| 6. Persónusniðin þjónusta |
Nýtir tillögur um tónlist, myndbönd, vörur eða annað efni sem þjónustan velur fyrir hann. |
Hefur meðvitað áhrif á tillögurnar, kannar efni utan þeirra og veltir fyrir sér hvernig persónusniðin þjónusta hefur áhrif á eigin val. |
| 7. Persónuupplýsingar |
Fylgir reglum og leiðbeiningum um hvaða upplýsingar má setja inn í gervigreindarkerfi. |
Kynnir sér hvernig upplýsingar eru notaðar, metur áhættuna og tekur sjálfstæðar ákvarðanir um hvað er við hæfi að deila og við hvern. |
| 8. Sjálfvirkar ákvarðanir |
Nýtir þjónustu sem byggir á sjálfvirkri ákvarðanatöku og treystir yfirleitt niðurstöðunum. |
Spyr hvaða upplýsingar og forsendur liggi að baki ákvörðunum og leitar skýringa eða mótmælir þegar ástæða er til. |
| 9. Nýjungar í gervigreind |
Lærir á nýja eiginleika og uppfærslur þegar þeir birtast í þeirri þjónustu sem hann notar. |
Kynnir sér breytingar sem skipta máli, endurmetur fyrri hugmyndir sínar og kannar hvernig nýir möguleikar geta haft áhrif á eigin notkun og aðstæður. |
| 10. Gervigreind í samfélaginu |
Nýtir sér gervigreindarþjónustu og lagar sig að þeim breytingum sem henni fylgja. |
Tekur gagnrýna afstöðu til áhrifa gervigreindar á samfélagið og tekur þátt í umræðu og ákvörðunum um hvernig hún eigi að þróast og vera notuð. |